zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
16 July 2026
Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB
Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til...
10 min
15 July 2026
Bílabólgan mikla - bílar stækka og stækka
Bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi. Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og...
10 min
14 July 2026
Stríð Bandaríkjanna og Írans II
Það sem átti að verða stríð til að steypa klerkastjórninni í Íran hefur að talsverðu leyti þróast út í stríð um þá mikilvægu siglingaleið, Hormússund, sem bæði ríki vilja stjórna allri umferð um og jafnvel rukka fyrir - eða ekki. Annar ásteytingarsteinn, sem nauðsynlegt er að ryðja úr vegi ef nokkur von á að vera um eitthvað í líkingu við varanlegan frið, er árásarstríð Ísraela á Líbanon. Íranar...
10 min
13 July 2026
Stríð Bandaríkjanna og Írans
Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af...
10 min
10 July 2026
10 min
09 July 2026
Þúsund manns krefjast skaðabóta af Samherja
Alþjóðasamtökin Transparency International afhentu héraðssaksóknara í dag skaðabótakröfur ríflega eitt þúsund Namibíumanna sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna meintra mútubrota og spillingar Samherja í Namibíu. Transparency samtökin hafa lengi hafi barist fyrir því að fórnarlömb spillingar í alþjóðaviðskiptum fái áheyrn og skaða sinn metinn. Samherjamálið hafi haft alvarlegar afleiðingar í...
14 min
08 July 2026
Nigel Farage boðar til kosninga
Nigel Farage, formaður breska Umbótaflokksins, sem kosinn var á þing fyrir tveimur árum, sagði í gær af sér þingmennsku og tilkynnti um leið að hann hygðist bjóða sig fram í aukakosningunum sem afsögn hans kallar á. Næsta öruggt má heita að hann fari með sigur af hólmi, enda ætla aðrir helstu flokkar landsins að sniðganga kosningarnar, sem þeir segja ódýrt auglýsingatrix hjá Farage, til þess...
9 min
07 July 2026
Kynningarefni Landskjörstjórnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og íslenskir kafbátar
Landskjörstjórn er falið að sjá um kynningarefni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar síðsumars. Hún þarf að gæta hlutleysis og ekki er hægt að gefa afdráttarlaus svör við öllum spurningum sem vakna en það er mikilvægt að fólk taki ígrundaða afstöðu og kynni sér málin að mati Ástríðar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Íslenska fyrirtækið Teledyne Gavia, sem eitt sinn hét...
10 min
06 July 2026
Skipting framlaga Íslands til varnarmála
49 milljarðar fara í varnartengd verkefni í ár, samkvæmt útreikningum utanríkisráðuneytisins – 0,92% af vergri landsframleiðslu. Garðar Forberg, fyrrverandi fastafulltrúi Íslands hjá NATO í Brussel efast um þessa útreikninga. Nær sé að skoða hvernig við stöndum okkur í samanburði við aðra – og sá samanburður er ekki alltaf hagstæður.
10 min
03 July 2026
Samskipti við Bandaríkin, NATO og heilbrigðisþjónusta við heimilislausa
Sérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó. Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast. Rétt þjónusta á réttum stað....
20 min